Meðalfjarlægð Mars frá sólu er næstum 230 milljón km og umferðartíminn er 687 jarðardagar. Einn dagur á Mars er rétt um 40 mínútum lengri en dagur á jörðinni eða 24 klukkustundir. Eitt Marsár er þar af leiðandi 668 Marsdagar.
Möndull Mars hallar um 25,19 gráður sem er svipað og möndulhalli jarðar. Af því leiðir að Mars hefur árstíðir líkt og jörðin. Hins vegar jafngildir eitt Marsár tveimur jarðarárum og því eru árstíðirnar tvöfalt lengri á Mars en jörðinni.